Hjéló pípól !
já, þá er komið að því. Ég er að hugsa um að skrifa
eitthvað inná þessa síðu loksins.
Það er nú ekkert mikið um að ske, fyrir utan það að ég er að fara
til Danmörku aðra nótt. Það verður stuð, shop til' you drop? ójá..
en þannig er nefninlega mál með vexti að ég er varla byrjuð að
pakka og ég hef engann tíma fyrir það á morgun nema smá á milli
skóla og vinnu svo ekki fyrr en um miðnætti á morgun og ég fer uppá
flugvöll svona á milli 5 og 6, þannig að það verður ekki mikill
svefn hjá minni. En þá get ég bara sofið í flugvélinni? vona ég..
ehh
Helgin var bara mjög fín. Föstudagskvöldið var alveg
totally awesome sko. Fór á airwaves að sjá Islands og auðvitað Jakó
og get ég ei lýst þessum unaði. Líka bara hvað var dansað af sér
skóna þarna, apparat organ quartet stóð fyrir sínu. Í einu orði
sagt var þetta bara VÁ! þakka þér fyrir..
Á laugardaginn átti ég svo afmæli, því var bara létt fagnað í góðra
vinahópi á Kaffi París um daginn, kíktum í koló og svona. Svo um
kvöldið var smá afmælismatur, kaka og svona hérna heima, svo
hittumst við stelpurnar bara heima hjá Andreu að spjalla. það var
bara mjög fínt.
Í gær fór ég á Kona, með kötlu, mömmu hennar og ömmu. Það var bara
ágæt, fín sýning. Fyrir utan það hvað ég var að verða vitlaus á
kynnirnum. Guð minn almáttugur, sjaldan hef ég heyrt í
misheppnaðari kynni. Maður var að ærast þarna. Sigríður Klingenberg
( eða hvernig sem það er skrifað ) var þarna með spilin sín og
eitthvað svona skemmtilegt..
Um kvöldið fór ég svo á Mýrina með Andreu og Gunnhildi, og hún var
alveg frábær. Ég skemmti mér allavega konunglega og ég held að
stelpurnar séu sammála mér í því, er það ekki annars? Mæi með henni

Í dag var svo skóli, ég er algjör tossi! ég nenni ekki
neinu, mætti ekki í söguprófið svo ég þarf að taka tvöfallt próf
næst. Semsagt alla Fornir tímar bókina ! sjitt, fall ? já.. svo
atti ég að skila ensku ritgerð.. ekki búin að því, ég er ekki
byrjuð á bókinni. Mætti ekki í náttúrufræðiprófið á föstudaginn,
veit ekki hvort ég fái að taka það á morgun eða hvað? ég gæti
haldið endalaust áfram en ég fæ bara fiðrildi í magann !
Í kvöld var ég dómari í Stíl í Ásnum, ooog já það var
skondið en samt bara gaman. Ég sakna áslandsskóla
allt svo
easy.. skemmtilegt fólk og svona
AFMÆLI AFMÆLI AFMÆLI
=)
Enginn annar en hún Alexandra Fanney Jóhannsdóttir, einn
eigandi þessara síðu eins og þið kannski vitið. Þannig að ég ætla
bara að nota tækifærið og óska þér til hamingju með afmælið fyrir
hönd okkar obsecion stúlkna litla sykurhúðaði kremnbangsinn
minn;**
Nú ertu loksins orðinn 16 ára, og við getum farið að taka þig í
sátt !
Eigðu ynislegan dag elskan ;*(L)

þessi í græna..
En ég kveð þá í bili
Góða nótt og farið
vel með ykkur.
kveðja,
Ásdís.